Heimsins bezta bull

23 apríl 2007

Verð að mæla með mjög áhugaverðri mynd sem ég sá í bíó síðasta föstudag; Sunshine...

18 apríl 2007

Rakst á ansi góða hljómsveit á Myspace fyrir ekki svo löngu síðan; Sick Puppies

11 apríl 2007

Nú eru 10 dagar liðnir síðan ég fékk mér tattoo á bakið og því um að gera að birta myndir fyrir og eftir







Mjög sáttur með útkomuna :)

02 apríl 2007

Ánægjuleg helgi liðin :) Föstudagskvöldið var pókerkvöld hjá Munda þar sem ég, Ægir, Mundi og Óli spiluðum Texas Hold'em af miklum móð. Fengum svo far með Óla í bæinn og þar hélt svallið áfram eitthvað fram eftir nóttu. Þurfti að vakna snemma þar sem ég átti að vera mættur í tattoo kl. 11.00 hjá Tattoo og Skart. Það hafðist og einni og hálfri klukkustund síðar var búið að setja þennan fína tígrisdýrs haus á bakið á mér :) Þetta var mun minna óþægilegt en ég bjóst við og miklar líkur á að ég haldi áfram að þróa þetta tattoo í nánustu framtíð :P



Þegar heim var komið komst ég að því að Liverpool hafði unnið Arsenal 4-1 sem er var mjög hressandi, annars gerði ég nú minnst lítið af mér á laugardeginum enda bakið frekar aumt.

Á sunnudeginum fór ég svo í fermingarveislu sem byrjaði nú ekki sem best því við fórum í vitlausa veislu :S Einhverra hluta vegna höfðum við ruglast á Hallveigarstíg og Hallveigarstöðum :P en þetta endaði nú allt vel sem betur fer :)

Verð á Alureyri um páskana til að skoða nýjasta fjölskyldumeðliminn og væntanlega verður farið á skíði í leiðinni og borðað mikið af páskaeggjum.

en jæja nóg í bili...