Heimsins bezta bull

22 ágúst 2005

Fannst þetta myndavélasystem á heimavist FNV alltaf mjög óréttlátt þegar það var sett upp á sínum tíma...greinilega einhver sem tók til sinna ráða og náði meira segja árangri...gott hjá honum :)

Menningarhelgin var voða fín...Fór í kveðjuteiti þriggja góðra manna (Sössa, Sigga og Mumma), sem eru að leggjast í víking til Danmerkur, á föstudagskveldið. Gleðin var haldin í Grafarvoginum hjá kærustu Mumma...Ákvað ég að gerast nokkuð djarfur og keypti kyppu af "nýjum" bjór...Mæli alls ekki með honum, enda um algjört sull að ræða ---> Brauperle.

Eftir nokkuð góða drykkju, fyrir utan slæman bjór var haldið niður í bæ eins og vanalega, aldrei þessu vannt var ég ekki að vinna daginn eftir þ.a. ég var ekki kominn heim fyrr en rúmlega 05...

Vaknaði skrítinn í hausnum (væntanlega útaf þessum slæma bjór) rúmlega 11, fór þá og keypti nýjasta "trendið" Bananarúllutertu ala Jóa Fel...(sjúklega góð en allt of dýr :S). Fór svo í menningarreisu með kærustunni niður í bæ...

Skoðuðum fyrst Frímúrarahúsið, sem var opnað almenningi í fyrsta sinn á menningarnótt...Mjög áhugaverð ferð, aðallega samt fyrir kærustuna þar sem langafi hennar var eitt sinn mjög mikils virtur frímúrari, og náði að mér skillst æðstu tign innan þessa dularfulla karlaveldis...Sáum við m.a. risa-málverk af kallinum...

Því næst var rölt niður Laugaveginn...Hittum við þar Ægi og Freyju sem voru misþreytt eftir djamm föstudagsins :P Því næst var komið við á Ingólfstorgi...Ætluðum að skoða "Draugahúsið" en röðin var fáránlega löng...Fórum þess í stað á Þjóðminjasafnið og lentum þar í 1 og hálfs tíma galdra prógrammi sem var virkilega skemmtilegt :)

Lá þá leiðin aftur niður á Ingólfstorg, með smá viðkomu á listaverkasýningu Einars Hákonarsonar í Hljómskálagarðinum...Algjör snillingur þar á ferð og samkvæmt verðmiða myndanna virðist hann gera sér fulla grein fyrir því...Verðbil myndanna var 110þ-1.200þ kr. :S
Dýrastar voru myndirnar af Halldóri Laxnes, Einari Ben og Steini Steinarr...Flottasta myndin af okkar mati var einskonar hestamynd...og verðmiðinn 690þ kr...

Þegar við komum á Ingólfstorg var Húnverks/Húsvísk ættaða hljómsveitin Fort Knox að spila...Mér til mikillar gleði :)

Fórum svo fljótlega heim aftur enda klukkan að ganga 19...

Röltum svo aftur niður í bæ rúmlega 20...Sáum Hjálma spila af mikilli snilld. Því næst var farið á Bar 11 og hlýtt enn meir á Fort Knox...Þar á eftir var það restin af Todmobile...og að lokum mikilfengleg flugeldasýning með hellidembu í eftirrétt.

Hafði einfaldlega ekki úthald í annað djamm það kvöld enda dagurinn búinn að vera ansi þéttur og skemmtilegur :)

Vonandi mun þessi menningarnótt ekki fjara út með nýjum valdhöfum næsta sumar...enda um mjög skemmtilegt framtak að ræða.

Sunnudagurinn var mun rólegri, vaknaði kl. 08.30 og skrapp í golf á Litla vellinum, jafnaði þar minn besta árangur, þó ég hafi þrípúttað tvær holur; 43 högg á par 32...nokkuð sáttur en stefni á reglulegt undir 40 í lok tímabils ;P

Orðið er framorðið...og þetta er orðið allt of langt...

l8ter

03 ágúst 2005

Fór í minn fyrsta golfkennslutíma í gær...Sem var mjög áhugaverður :) Kennarinn sem ég valdi mér ku vera einn sá besti á landinu; Úlfar Jónsson. Tíminn hófst á því að hann tók video-myndir af sveiflunni minni bæði að aftan og á hlið...Downloadaði þeim svo í fartölvuna og sýndi mér hvað ég var að gera vitlaust.

Ég var víst með mjög fína lokastöðu en það var líklega það eina góða við sveifluna mína ;P

Í fyrsta lagi þurfti ég að laga gripið...
Í öðru lagi þurfti aðeins að laga fótastöðuna...
Í þriðja lagi þurfti lítilega að laga aftursveifluna...hugsa meira um að lyfta vinstri hönd meira upp til að ná brattari sveiflu...
og í fjórða lagi þurfti ég að rétta aðeins betur úr bakinu...

Lykillinn á að fá rétta sveiflu var að laga gripið og fótastaðsetningu...hitt myndi í raun leiðréttast sjálfkrafa...

Eftir góðan hálftíma af sveiflum með og án bolta undir góðu eftirliti Úlfars var tíminn búinn (allt í allt 45 mínútur)...og í lok tímans var ég farinn að skjóta þráðbeint rúmlega 100 metra með sjöu :D

Svo maður spyr sig...hvers vegna byrjaði maður ekki sumarið á því að fara til golfkennara? :/

Um næstu helgi er stefnan sett á Borgarnes...Til að aðstoða Sidda við að flytja inn í nýja íbúð. Þ.e.a.s. ef pizzaveislan, bjórinn og golfferðin daginn eftir stendur enn til boða?

Er á brainstorma þessa stundina hvaða golfvörumerki ég ætti að fjárfesta í á næstu árum...Datt helst í hug Ping; Veit að Brynjar Bjarkarson er að fara fjárfesta í nýju setti næsta haust, Þarf að kanna hvort hann sé búinn að selja gamla settið??

Pokinn minn (sem er vel yfir 30 ára) samanstendur af þessa stundina af:

Dunlop Driver (11°) (sem ég er með í láni hjá vinnufélaga :)
Howson 3-tré Oversize (Keypt í Markinu Ármúla í byrjun sumars)
Um 30 ára gömul Slazenger Professional Járn (5,7,9; Ný grip)
1 árs gömul Howson Járn (4,6,P,S)
Forláta Putter sem er ekkert merktur...

Er einnig með tvær "alvöru" Slazenger trékylfur; 1 og 4 sem ég nota ekkert...enda um hálfgerða safngripi að ræða.

Nóg í bili...